Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna fór fram í dag fimmtudag 28. maí í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Veitt voru verðlaun fyrir hlutfall daga, heildarfjöldi kílómetra og hlutfall kílómetra.Sjá nánar27. 05 2015
Nú er Hjólað í vinnuna 2015 lokið og úrslit orðin ljós.
Hægt er að sjá stöðu efstu liða með því að smella hér eða smella á "Úrslit" hér fyrir ofan og velja „Úrslit 2015“. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall daga.Sjá nánar26. 05 2015
Lokadagur Hjólað í vinnuna er í dag, þriðjudaginn 26. maí. Hámarksfjöldi daga sem hægt er að skrá ferðir á eru 13 dagar. Hægt verður að skrá árangur á liðsmenn til klukkan 12:00, miðvikudaginn 27. maí, eftir það verður kerfinu lokað. Staðfest úrslit verða birt á vefnum þennan sama dag eftir klukkan 14:00.Sjá nánar22. 05 2015
Hér fyrir neðan má sjá vinningshafana í skráningarleik Rásar 2. Enn eigum við eftir að draga út 3 vinningshafa í næstu viku. Alilr sem dregnir eru út í skráningarleiknum fá pumpu og framljós að verðmæti 10.000 kr. frá Erninum. Við munum svo draga út 10 liðsstjóra eftir hádegi í dag í liðsstjóraleiknum. Og hljóta þeir hraðamæla frá Erninum. Sjá nánar21. 05 2015
Mikil stemming hefur verið síðustu daga í kaffitjöldunum. Alls hafa verið fjögur kaffitjöld í Reykjavík og eitt í Hafnarfirði. Síðasta kaffitjaldið verður í dag fimmtudaginn 21. maí á Akureyri frá kl. 15:30-17:30.Sjá nánar18. 05 2015
Við vonum að allt gangi vel og með hlýnandi veðri fari þátttakan aðeins að aukast. Enn er hægt að skrá sig til leiks og bæta við liðum og liðsmönnum. Við minnum á að einnig má skrá gönguferðir og annan virkan verðamáta inn.Sjá nánar11. 05 2015
Kaffitjöldin verða á sínum stað eins og undanfarin ár en þó með breyttu fyrirkomulagi. Í ár verða 5 kaffitjöld á 5 dögum, eitt á hverjum degi. Viðgerðamenn frá Erninum verða á staðnum og smyrja keðjur, bremsur og pumpa í dekk. Dr. bæk og Hjólafærni verða einnig á staðnum og félagar úr Hjólreiðasambandi Íslands og Landssamtökum hjólreiðamanna.Sjá nánar06. 05 2015
Skráning er í fullum gangi og nú þegar hafa 308 lið skráð sig til keppni frá 157 vinnustöðum. Keppni hefst næstkomandi miðvikudag svo um að gera að skrá sig og vera með. Sjá nánar