Úrslit Hjólað í vinnuna 2026

01. júní 2026

Þrátt fyrir góða frammistöðu þátttakenda í Hjólað í vinnuna 2026 var þátttakan í ár heldur minni en á síðasta ári.
Alls skráðu 3.443 þátttakendur ferðir sínar, sem námu 282.219 kílómetrum sem jafngildir um 210,77 hringferðum í kringum landið. Keppnistímabilið í ár stóð í 18 daga.
Til samanburðar voru 4.346 virkir þátttakendur árið 2025 sem fóru samtals 297.450 kílómetra á aðeins 15 dögum. Þannig má sjá að virkni og þátttaka hefur dalað nokkuð á milli ára, þrátt fyrir lengra keppnistímabil í ár.
Í ár voru 252 vinnustaðir virkir í keppninni, í átta stærðarflokkum og 206 lið tóku þátt í kílómetrakeppninni.

Hér má sjá úrslit í hlutfalli daga og hér eru úrslit í kílómetrakeppninni.

KEPPNISDAGAR VORU 18 Í ÁR.
Alls voru 285 (518) vinnustaðir skráðir með 623 (788) lið, einungis 253 (303) vinnustaðir voru virkir með 3,443 (4.346) virka liðsmenn.
Í kílómetrakepnninni voru 206 (237) virk lið skráð.

Alls voru hjólaðir 282.219 km (297.450) eða um 210,77 (222,14) hringir í kringum landið.
ATH. Tölu í svigum er fjöldi frá árinu áður.

Ferðamátinn var þessi:
Hjólað 62,7%
Rafmagnhjól 23,5%
Ganga 8,7%
Strætó/Gengið 2,6 %
Rafskutlur 1,5%
Hlaup 0,6 %
Strætó/Hjólað 0,2%
Samferða/gengið 0,1 %
Annað 0,1%
Hjólastóll 0%
Línuskautar 0%

ÍSÍ þakkar samstarfsaðilum fyrir samstarfið og þátttakendum fyrir góða keppni og minnir á verðlaunaafhendingu miðvikudaginn 3. júní í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, kl. 12:10. Súpa og brauð í boði.