Hjólað í vinnuna 2026 sett í Elliðaárstöð
05. maí 2026Setning átaksins Hjólað í vinnuna 2026 fór fram í Elliðaárstöð í morgun. Þar hvöttu gestir landsmenn til að hjóla til vinnu í þágu heilsu, umhverfis og bættra lífsgæða
Á dagskrá voru hressileg og hvetjandi ávörp frá fjölbreyttum hópi gesta. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, bauð gesti velkomna og sagði frá verkefninu og þróun þess í gegnum árin. Í kjölfarið tóku til máls Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur, Inga Dóra Hrólfsdóttir sviðsstjóri landvörslusviðs Náttúruverndarstofnunar, Birgir Fannar Birgisson frá Reiðhjólabændum, Gunnhildur Sveinsdóttir frá SÍBS, Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir frá Krabbameinsfélaginu og Búi Bjarmar Aðalsteinsson, stjórnandi Hjólavarpsins. Öll voru þau sammála um mikilvægi verkefnisins og hvöttu landsmenn til að velja þennan umhverfisvæna, hagkvæma og heilsusamlega samgöngumáta.
Alma D. Möller þakkaði ÍSÍ fyrir að halda átakinu á lofti og benti á að Hjólað í vinnuna hafi haft jákvæð áhrif á lýðheilsu þjóðarinnar. Frá árinu 2003 hafa þátttakendur hjólað samanlagt sem nemur um 200 hringum í kringum jörðina, eða um 8 milljónum kílómetra. Til samanburðar jafngildir það um það bil 20 ferðum til tunglsins fram og til baka.
Heiða Björg Hilmisdóttir lagði áherslu á vaxandi notkun virkra samgöngumáta. Árið 2010 nýttu einungis um 2% íbúa sér slíkan ferðamáta, en í dag eru þeir nær 7%. Þá sýna nýlegar kannanir að allt að 14% landsmanna séu tilbúnir til að nýta sér virkan ferðamáta til og frá vinnu.
Inga Dóra Hrólfsdóttir minnti á þá núvitund og lífsgæði sem fylgja hjólreiðum. Hún hvatti þátttakendur til að gefa sér tíma til að njóta náttúrunnar, fylgjast með umhverfinu og hlusta á fuglasöng á leið sinni til og frá vinnu.
Birgir Fannar Birgisson kynnti árvekniátakið „GUL HJÓL“, sem snýr að umferðaröryggi virkra vegfarenda. Hingað til hafa 25 gul hjól verið sett upp víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu sem áminning um mikilvægi þess að fara varlega í umferðinni, enda hafa slys á óvörðum vegfarendum verið of tíð undanfarin ár.
Gunnhildur Sveinsdóttir og Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir kynntu matarvefinn Gott og einfalt, þar sem lögð er áhersla á næringaríkt og gott mataræði. Þær minntu á að góð næring og hreyfing fari saman og að auðvelt sé að skipuleggja holla máltíðir og millibita með aðstoð vefsins.
Búi Bjarmar Aðalsteinsson vakti athygli á því að virkur ferðamáti sé persónulegri en akstur í bíl. Þegar við hjólum erum við í meiri tengingu við umhverfið og fólkið í kringum okkur, sem gerir borgina lifandi og meira aðlaðandi.
Að loknum ávörpum leiddi Búi gesti út þar sem fyrsta hjólreiðaförin markaði upphaf átaksins.
ÍSÍ þakkar öllum fyrir komuna og lýsir Hjólað í vinnuna 2026 formlega hafið í 24. sinn.
Boðið var upp á veitingar frá Mjólkursamsölunni.
Við óskum öllum þátttakendum góðs gengis – og minnum á að fara varlega í umferðinni!
👉 Hér má sjá fleiri myndir frá setningunni í morgun (ljósmyndir: Árni Sæberg og starfsfólk ÍSÍ).








