Setning Hjólað í vinnuna 5. maí - Hjólaðu við!

28. apríl 2026
Setning Hjólað í vinnuna fer fram í Gestastofu Elliðaárstöðvar þriðjudaginn 5. maí og hefst kl. 08:30
Allir velkomnir að hjóla við á leið til vinnu, hlýða á stutt hvatningarávörp og hjóla átakið af stað.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, býður gesti velkomna og stýrir dagskránni.

Gestir sem flytja ávörp eru:

-Alma D. Möller, heilbriðgðisráðherra
-Heiða Björk Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavík
-Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðsstjóri landvörslusviðs Náttúruverndarstofnunar
-Birgir Fannar Birgisson, „Gul hjól“ árvekniátak Reiðhjólabænda er varðar öryggi virkra vegfarenda í umferðinni
-Gunnhildur Sveinsdóttir, SÍBS og Birgitta L. Vilhjálmsdóttir, Krabbameinsfélagið – Gott og einfalt
-Búi Bjarmar Aðalsteinsson, stjórnandi Hjólavarpsins, hjólari og Jáhrifavaldur Hjólað í vinnuna 2026

Að ávörpum loknum munu þeir sem geta hjóla átakið af stað. Þetta er einungis lítill hringur og meira táknrænn. Drykkir í boði Mjólkursamsölunnar verða í boði á meðan birgðir endast.

Samstarfsaðilar sem gefa vinninga í skráningar- og myndaleik Hjólað í vinnuna

Reiðhjólaverslunin Örninn hefur má segja verið með frá byrjun og gefur vinninga í skráningar-, mynda- og liðstjóraleik, auk þess að Örninn gefur reiðhjól til heppins þátttakanda í enda átaksins.
Unbroken mun einnig gefa stauk af freyðitöflum í skráningarleik auk gjafabréfa í myndaleik.

Aðrir samstarfsaðilar

Rás 2 mun draga út heppna vinningshafa alla virka daga á meðan Hjólað í vinnuna stendur yfir í þættinum Morgunverkin með Andra Frey Viðarssyni.
Gott og einfalt er matarvefur SÍBS og Krabbameinsfélagsins í samstarfi við embætti landlæknis sem hvetur til hollra matarvenja og undirstrikar mikilvægi þess að næra sig rétt, sérstaklega þegar hreyfing er hluti af daglegu lífi. Hér má finna Vikumatseðil Hjólað í vinnuna

"Jáhrifavaldarnir" María Ögn Guðmundsdóttur, margfaldur íslandsmeistari í götuhjólreiðum og Búi Bjarmar Aðalsteinsson, hjólreiðamaður og þáttastjórnandi Hjólavarpsins (Hlaðvarp), munu vera með jákvæða hvatningu til þátttakenda á samfélagsmiðlum á meðan Hjólað í vinnuna stendur yfir.

Hjólum í vinnuna og mætum ferskari til leiks!