Opnað verður fyrir skráningar 17. apríl
15. apríl 2026Verkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 1. - 31. maí nk. Opnað verður fyrir skráningar 17. apríl. Hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða til og með 31. maí.
Hver þátttakandi getur skráð 18 daga (þá hvaða 18 daga sem er). Þetta er gert til þess að jafna leikinn milli vaktavinnufólks og annarra. Það eru 3 rauðir dagar í maí.
Fyrirtæki og stofnanir um allt land geta nú farið að huga að því að skrá vinnustaðinn til leiks og hvetja þannig allt starfsfólk til að vera með. Það er alltaf mikilvægt fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman.
Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu og vekja í leiðinni athygli á virkum ferðamáta, en hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti.
Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þessar þrjár vikur og taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.
Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt, en á mörgum stöðum deilum við göngustígum með gangandi og hlaupandi fólki, svo við skulum muna eftir tillitsseminni, hjálminum og bjöllunni.