Verðlaunaafhending 2024

31. maí 2024Tuttugasta og önnur verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna fór fram í Íþróttamiðstöðinni í hádeginu í dag, 31. maí. Hjólað í vinnuna er því formlega lokið í ár.

Keppnin stóð yfir frá 8. - 28. maí. Verðlaun voru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall þátttökudaga. Í kílómetrakeppninni var þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir bæði heildarfjölda kílómetra og hlutfall kílómetra miðað við fjölda starfsmanna. Alla vinnustaði í verðlaunasæti má finna hér á vefsíðu verkefnisins.

Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að nota virkan ferðamáta. Það var hörð keppni hjá mörgum fyrirtækjum og margir spenntir fram á síðustu stundu áður en úrslitin voru staðfest.

Nánari upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á heimasíðu verkefnisins og upplýsingar um alla vinningshafa í skráningar, mynda og liðstjóraleik má finna hér.

Samstarfsaðilar Hjólað í vinnuna í ár voru Örninn, Rás2, Unbroken og Hopp.

Starfsfólk ÍSÍ þakkar öllum þátttakendum fyrir keppnina í ár og óskar öllum vinningshöfum innilega til hamingju!
Þið getið öll klappað ykkur á bakið, þið hafið öll verið frábærar fyrirmyndir í hreyfingu og umhverfisvænum samgöngum.

Á myndinni má sjá hópmynd af verðlaunahöfum í 1. - 3. sæti í hlutafalli daga og kílómetrakeppninni auk verðlaunahöfum í skráningar- og liðsstjóraleik. Fleiri myndir af verðlaunaafhendingu er hægt að finna hér á myndasíðu ÍSÍ.