Setningarhátíð Hjólað í vinnuna 2023 fór fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

03. maí 2023Hjólað í vinnuna var formlega sett í morgun og á dagskrá voru hressileg hvatningarávörp góðra gesta.
Andri Stefánsson, framkvæmdarstjóri ÍSÍ bauð gesti velkomna og sagði stuttlega frá verkefninu og þróun þess. Að því loknu tóku Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF og Úlfar Linnet, hjólreiðakappi til máls. Öll voru þau sammála um mikilvægi verkefnisins og hvöttu þau öll landsmenn til að velja þennan umhverfisvæna, hagkvæma og heilsusamlega ferðamáta.

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra talaði um að Hjólað í vinnuna væri eitt það markverðasta og mikilvægasta lýðheilsuverkefni sem sett hafi verið af stað á undanförnum áratugum. Allt sem ýtir undir heilbrigðan lifstíl er ótrúlega mikilvægt, bæði fyrir fólkið sem tekur þátt í svona verkefni og ekki síður heilbrigðiskerfið. Allt skiptir máli þegar kemur að hreyfingu.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, talaði um mikilvægi góðrar líkamlegrar og andlegrar heilsu og hvað svona verkefni væri frábært fyrir loftslag og umhverfi. Fólk væri í meira mæli að nýta sér umhverfisvænan ferðamáta og það væri auðveldara nú en áður þar sem búið væri að gera góða hjólastíga á flestum stöðum. Þetta verkefni væri gott fyrir fólkið og gott fyrir umhverfið.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri talaði um hvað hjólreiðar væru frábær samgöngumáti og á þessu ári væri t.d verið að koma upp hjólagrindum og aðstöðu fyrir hjól, við alla skóla í borginni. Hjólreiðasamfélagið sé orðin fjöldahreyfing og hjólið orðinn samþykktur samgöngu- og ferðamáti, það eigi að mæta þessari fjöldahreyfingu og gera betur.

Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar nefndi að það væri svo mikilvægt að þeir sem geti hjólað geri það til að létta á bæði umferð og loftgæðum. Varðandi keppnina sjálfa þá skoraði hún á þátttakandur að taka lengri leiðina heim og njóta umhverfisins. 

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF, minnti okkur á að það eru börnin sem taka skellinn þegar kemur að slæmum loftgæðum ekki bara hér á Íslandi heldur um heim allan. Í ár hafa UNICEF og Hjólað í vinnuna tekið höndum saman. Fyrirtækjum sem taka þátt í Hjólað í vinnuna verður gefin kostur á að styrkja Loftlagssjóð í gegnum áheit. Þá heitir fyrirtæki á starfsfólkið sitt ákveðinni upphæð sem fyrirtækin sjálf ákveða og sá peningur fer í að styrkja starf UNICEF. Loftlagssjóður styrkir meðal annars menntun og fræðslu fyrir börn og ungt fólk varðandi loftlagsáhrif, nýsköpun á sjálfbærum og umhverfisvænum lausnum fyrir heilbrigðis- og menntakerfi og styrkir innviði samfélaga til að auka viðnám við loftlagsbreytingum.
Næstu daga mun UNICEF opna fjáröflunarsíðu inná www.unicef.is
Starfsfólk UNICEF mun hafa samband við fyrirtæki sem hafa skráð fyrirtæki til keppni 

Úlfar Linnet hjólreiðakappi sá til þess að fólk fór út með bros á vör.

Hjólað í vinnuna 2023
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur nú hafið heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna í tuttugasta og fyrsta sinn. Það stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 23. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta.

Verkefnið Hjólað í vinnuna er góð leið til þess að hressa upp á stemninguna í fyrirtækinu og þjappa hópnum saman. Hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti og jafnframt eru þær frábær útivist, hreyfing og getur verið öflug líkamsrækt.

Í vinnustaðakeppni er fyrst og fremst keppt um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða. Að auki er kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miða við fjölda liðsmanna í liði. Líkt og síðustu ár hvetjum við þá sem vinna heiman frá sér að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annan virkan ferðamáta sem nemur kílómetrum til og frá vinnu. Einfaldara getur það ekki verið og allir geta tekið þátt.
Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning á hjólreiðum sem heilsusamlegum og umhverfisvænum samgönguvalkosti. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífsstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitafélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk.

Allar upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á www.hjoladivinnuna.is en þar má finna efni reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira.

Myndir með frétt