Síðasti keppnisdagur var 24. maí

24. maí 2022

Síðasti keppnisdagur Hjólað var þriðjudaginn 24. maí. Enn er hægt að skrá allar ferðir frá 4. - 24. maí en lokað verður fyrir skráningar kl 12:00 í dag, miðvikudaginn 25. maí. Eftir það lokast kerfið og engu hægt að breyta

Þátttakendur Hjólað í vinnuna 2022 hafa heldur betur staðið sig með prýði, en rúmlega 5.200 þáttakendur hafa skráð ferðir sínar inn í kerfið. Vel gert!

Allir þeir sem skráðu sig til leiks í Hjólað í vinnuna áttu möguleika á að verða dregnir út í skráningarleik. Dregið var úr skráðum keppendum alla virka daga í þættinum Morgunverkin á Rás 2 og hlutu 15 þátttakendur, 450 lumen framljós frá Reiðhjólaversluninni Erninum.

Í lokin verða 10 liðsstjórar dregnir út í Liðsstjóraleik Hjólað í vinnuna. Vinningshafar fá glæsilega pumpu frá Reiðhjólaversluninni Erninum í vinning.

Föstudaginn 27. maí verður síðasti þátttakandi dreginn út í skráningarleik Hjólað í vinnuna. Viðkomndi fær hvorki meira né minna en glæsilegt reiðhjól frá Erninum í vinning.
Þá verður einnig besta myndin valin í myndaleik Hjólað í vinnuna og fær vinningshafi hjálm frá Erninum.

Nöfn allra vinningshafa má sjá hér 

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna fer svo fram föstudaginn 27. maí í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal kl. 12:10.
Allir velkomnir að mæta og þiggja léttar veitingar. Vinningshafar í fyrstu 3 sætunum eru sérstaklega hvattir til að mæta en hægt er að fylgjast með öllum úrslitum hér á heimasíðu Hjólað í vinnuna

Mynd með frétt var send inn í gegnum heimasíðu Hjólað í vinnuna