Lokaspretturinn

23. maí 2022

Við erum komin á lokasprettinn í Hjólað í vinnuna en síðasti keppnisdagur er á morgun, þriðjudaginn 24. maí. Nú fer hver að verða síðastur að ná inn ferðum og skrá þær í kerfið. Hægt verður að skrá til kl. 12:00 miðvikudagsins 25. maí. Eftir það er engu hægt að breyta

Endilega verið dugleg sjálf og hvetjið einnig samstarfsfélagana til að klára verkefnið með trompi, og munið að skrá tímanlega inn í kerfið!

Við bendum á að hægt er að fylgjast með stöðunni hér á heimasíðu Hjólað í vinnuna.

Mynd með frétt var send inn í gegnum heimasíðu Hjólað í vinnuna