Allur virkur ferðamáti telst með

06. maí 2022Vert er að benda á að hjólaðar vegalengdir til og frá vinnu er ekki eingöngu það sem má skrá í keppninni heldur telst allur virkur ferðamáti til og frá vinnu með, eins og ganga, hlaup, hjólabretti, línuskautar og strætó/rafhlaupahjól. Ef fólk er samferða á bíl eða tekur strætó/rafhlaupahjól, þá eru skráðir þeir km sem fólk gengur.
Þátttakendum Hjólað í vinnuna er bent á að hægt er að nota Strava til að halda utan um sínar ferðir og vegalengdir og hlaða upplýsingunum beint inn í skráningarkerfið.

Það má skrá sig til leiks allan tímann á meðan keppnin stendur yfir á www.hjoladivinnuna.is