Skráning hefst 20. apríl

31. mars 2022

Verkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 4. - 24. maí nk. Opnað verður fyrir skráningar 20. apríl og hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða fram til 24. maí.

Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi. Fyrirtæki og stofnanir um allt land geta nú farið að huga að því að skrá vinnustaðinn til leiks og hvetja þannig allt starfsfólk til að vera með þrátt fyrir að fólk vinni jafnvel heiman frá sér. Það er alltaf mikilvægt fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman.

Fólk sem vinnur að heiman má einnig vera með. Útfærslan er einföld. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Munum baraað á mörgum stöðum þurfum við að deila göngustígum með öðru fólki. Munum eftir tillitsseminni og bjöllunni.

Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.