Hjólað í vinnuna hefst á morgun

04. maí 2021

Veðrið leikur sannarlega við okkur um þessar mundir og tilvalið að taka þátt í Hjólað í vinnuna sem hefst á morgun.

Hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga: 

  • Verkefnið fer fram frá 5. - 25. maí en þátttökudagar í verkefninu eru alls 13 talsins.
  • Það er hægt að skrá sig til leiks þar til verkefnið klárast þann 25. maí og skrá hreyfingu aftur í tímann. Það er þó mælt með því að skrá sig sem fyrst til leiks.
  • Það er hægt að nota hvaða virka ferðamáta sem er en rafhlaupahjól telja ekki með.
  • Ef þú ert að vinna heima getur þú tekið þátt með því að byrja og enda vinnudaginn á því að hjóla/ganga/hlaupa hring .
  • Ef þú ert atvinnulaus og í atvinnuleit getur þú tekið þátt og t.d. notað þína eigin kennitölu til að stofna vinnustað.
  • Ef þú ert að ferðast langar leiðir getur þú valið að taka strætó hluta af leiðinni og farið út fyrr en vanalega og gengið/hjólað/hlaupið hluta af leiðinni.
  • Allt telur, þó vegalengdin sé ekki löng þá telur það með til jafns við aðra sem fara lengra. Þeir sem vilja taka þátt í kílómetrakeppninni geta gert það sér. Sjá allt um kílómetrakeppnina hér
  • Allt um reglur Hjólað í vinnuna má finna hér
  • Allar leiðbeiningar vegna skráningar má finna hér

Ef einhverjar spurningar eða vangaveltur vakna er hægt að hafa samband á hjoladivinnuna@isi.is