Síðasti keppnisdagur á morgun

25. maí 2020

Á morgun, þriðjudag, er síðasti keppnisdagur Hjólað í vinnuna 2020. Við hvetjum alla til að klára keppnina með stæl og ekki síður að tileinka sér umhverfisvænan og hagkvæman ferðamáta áfram þó Hjólað í vinnuna átakinu sé að ljúka.

Munið að það má skrá ferðir farnar á tímabilinu 6. - 26. maí fram að hádegi þann 27. maí.

Á föstudaginn fer fram verðlaunaafhending í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjaveg 6, E-sal 3. hæð kl. 12:10 og eru allir velkominir að mæta og fylgjast með. Það eru veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum flokki í vinnustaðakeppninni og í kílómetrakeppninni. Vinningshafar verða tilkynntir á heimasíðunni á miðvikudaginn kemur. 

Gangi ykkur öllum vel á lokasprettinum!