Úrslit Hjólað í vinnuna

29. maí 2019

Nú er keppni lokið í Hjólað í vinnuna 2019 og úrslit lyggja fyrir í öllum keppnisflokkum.

Hér má nálgast staðfest úrslit þriggja efstu vinnustaða í hverjum flokki en hér má finna úrslit í kílómetrakeppninni. Heildarstöðuna er svo hægt að skoða á á heimasíðu Hjólað í vinnuna undir "Staðan"

Verðlaun eru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall daga. Í kílómetrakeppninni eru þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra.

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2019 verður föstudaginn 31. maí klukkan 12:10 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Allir eru boðnir velkomnir og vonumst við til að sjá ykkur sem flest.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar fyrir þátttökuna í ár og vonar að þið hafið haft gaman af og haldið áfram að hjóla inn í sumarið.

Hjólakveðjur.