Hjólað í vinnuna í fullum gangi

11. maí 2018

 

Hjólað í vinnuna 2018 fer fram dagana 2. - 22. maí. Enn er hægt að skrá sig til leiks og skrá hreyfingu aftur í tímann.

Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta.

Keppt er í átta flokkum um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustöðum og í liðakeppni um flesta kílómetra.

Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta. 

Að skrá sig til leiks:

1. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
2. Stofnaðu þinn eigin aðgang með því að skrá þig inn með Facebook eða búðu þér til notendanafn og lykilorð.
3. Velja má á milli þess að stofna vinnustað (þarf að gera ef vinnustaðurinn finnst ekki í fellilista) eða stofna/ganga í lið (þá er búið að stofna vinnustaðinn).
4. Skráningu lokið

Ef upp koma vandamál við skráningu er hægt að hafa samband við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í síma 514-4000 eða senda tölvupóst á netfangið hjoladivinnuna@isi.is.

Hér á síðu verkefnisins er yfirlit yfir allar helstu reglur Hjólað í vinnuna.