Staðfest úrslit og verðlaunaafhending

30. maí 2013Staða vinnustaða eins og hún birtist núna inn á síðunni „Staðan“ er endanleg. Einnig er hægt að sjá stöðu efstu liða með því að smella á "Úrslit" hér fyrir ofan. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfalla daga. Í kílómetrakeppninni eru þremur efstu liðunum veit  verðlaun fyrir heildarfjölda kílómetra og hlutfall kílómetra.

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna verður haldin í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins klukkan 12:10 – 13:00 á morgun, föstudaginn 31. maí. Allir velkomnir. Vinsamlegast skráið ykkur á netfangið hjoladivinnuna@isi.is.