Bætt hjólastígakerfi

28. maí 2013

halda áfram að lesa.

Hannað hefur verið snjallsímaforrit sem heitir „Saga Traffic; Trip tracker and travel surveys“ til notkunar í iPhone. Þátttakendur þurfa að sækja forritið, skrá sig inn í það með notendanafni og lykilorði og svara nokkrum bakgrunnsspurningum. Eftir að forritið hefur verið ræst skráir það sjálfkrafa allar ferðir á meðan það er í gangi, en einnig þarf að svara nokkrum spurningum varðandi hverja ferð að henni lokinni. Hægt er að slökkva á skráningu einstakra ferða á auðveldan hátt á upphafssíðu forritsins. Í lok dags þarf notandi síðan að senda inn niðurstöður í gegnum forritið. Óskað er eftir því að þátttakendur hafi forritið í gangi í einn dag þar sem reiðhjól er notað í a.m.k. einni ferð til að niðurstöðurnar séu sem marktækastar. Hægt er að velja hvaða dag sem er í vikunni 27. -31. maí.

Lögum um persónuvernd er fylgt til hlítar við úrvinnslu þessarar könnunar og verða innsend gögn á engan hátt rekjanleg til þátttakenda.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt og leggja þitt af mörkum við bætt hjólastígakerfi þá biðjum við þig að sækja forritið í App Store (leitarorð Saga traffic) eða gegnum iTunes. Á heimasíðu Saga Traffic, www.sagatraffic.is finnur þú svo leiðbeiningar varðandi notkun forritsins. Þegar þú opnar forritið í fyrsta sinn þarftu að skrá inn notendanafn og lykilorð. Notendanafnið þitt er kennitalan þín með bandstriki og lykilorðið velur þú sjálf(ur).

Með því að sem flestir taki þátt í þessari könnun fæst sem raunhæfust mynd af því hvaða leiðir hjólreiðamenn velja sér og hvers vegna og því hefur þú einstakt tækifæri til að leggja þitt af mörkum að bættu hjólastígakerfi.