Kaffitjöld aftur í dag

22. maí 2013

Kaffitjöld Hjólað í vinnuna verða opin aftur frá 16 – 18 í dag á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu:

  • Við Fjarðargötu í Hafnarfirði
  • Á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar, Laugardalsmegin
  • Við Miklubraut hjá gangbrautarljósunum við Klambratún

Boðið verður uppá kaffi frá Kaffitár í Hafnarfirði og á Suðurlandsbraut og í öllum tjöldunum verður Egils Kristall frá Ölgerðinni og aðilar frá hinum ýmsu hjólreiðafélögum með olíu á keðjuna og loft í dekkin.

Einnig verður kaffitjald í dag við Menningarhúsið Hof á Akureyri frá 16:30 – 18:00, við Menningarhúsið Berg á Dalvík á morgun og á Siglufirði og Ólafsfirði seinna í vikunni.