Skráning er í fullum gangi

19. apríl 2024Skráning í Hjólað í vinnuna er í fullum gangi en keppnin hefst 8. maí. Það er einfalt að skrá sig til leiks með því að smella á "Innskráning" á heimasíðu Hjólað í vinnuna og annað hvort stofna eða ganga í lið. Leiðbeiningar um skráningu í Hjólað í vinnuna má nálgast hér.

Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þátttöku..

Þeir sem eru að vinna heima geta auðvitað verið með. Viðkomandi byrjar þá vinnudaginn með því að hjóla, ganga eða hlaupa þá vegalengd sem samsvarar vegalengdinni til og frá vinnu í upphafi vinnudags, og svo aftur í lok vinnudags.