Úrslit Hjólað í vinnuna 2016

25. maí 2016Hjólað í vinnuna var haldið í fjórtánda sinn í ár. Nú er keppni lokið og úrslit eru ljós. Hér má nálgast staðfest úrslit þriggja efstu vinnustaða í hverjum flokki. Heildar stöðu keppninar má svo nálgast hér. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall daga. Í kílómetrakeppninni eru þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra.

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna verður föstudaginn 27. maí klukkan 12:10-13:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal (ATH breytt staðsetning frá því fyrri ár). Allir eru boðnir velkomnir og vonumst við til að sjá ykkur sem flest. 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar fyrir þátttökuna í ár og vonar að þið hafið haft gaman af og haldið áfram að hjóla inn í sumarið.

Hjólakveðjur.