Keppnin stendur frá 4. - 24. maí 2011 að báðum dögum meðtöldum
Það er einlæg von þeirra sem standa að Hjólað í vinnuna að verkefnið ýti við sem flestum af stað í reglulega hreyfingu og hvetji fólk til að taka upp heilsusamlegri og umhverfisvænni ferðamáta. Til þess að fyrirbyggja misskilning höfum við sett fram þessar reglur.
Hverjir eru gjaldgengir þátttakendur?
Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að koma sér til og frá vinnu þ.e. hjóla, skokka, ganga, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð.
Eftirfarandi regla er sett inn til að koma til móts við einstaklinga sem búa í öðru sveitarfélagi en þeir starfa og hafa ekki aðgang að almenningssamgöngum.
Þeir geta notast við einkabíl hluta af leiðinni en þá þurfa þeir einstaklingar að ganga minnst 1,5 km (~15 mín) eða hjóla minnst 3 km (~15 mín) hvora leið og uppfylla þannig ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um daglega hreyfingu.
Hvað má skrá?
Gjaldgengir þátttakendur mega skrá eftirfarandi ferðir:
- í og úr vinnu
- allar vinnutengdar ferðir á vinnutíma þ.e. á fundi og sendiferðir sem annars hefðu verið farnar á bíl.
Hvað má ekki skrá?
Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að hafa áhrif á ferðavenjur fólks. Þó svo að eftirfarandi leiðir séu frábærar til hreyfingar í daglegu lífi samræmast þær ekki meginmarkmiðum verkefnisins. Því má ekki skrá:
- heilsubótarhreyfinu í hádeginu, göngu eða hjólreiðatúr
- ef farið er út að hjóla eftir að heim er komið úr vinnu
- ef starfsmenn nota hjól eða göngu til að koma sér á mill staða innan vinnustaðar.
Keppnisgreinarnar eru tvær
- Flestir þátttökudagar (hlutfallslega m.v. fjölda starfsmanna í fyrirtækinu).
- Flestir km (hlutfallslega m.v. fjölda starfsmanna í fyrirtækinu).
Keppt er í 7 flokkum eftir fjölda starfsmanna í fyrirtækinu
- 3-9 starfsmenn
- 10-29 starfsmenn
- 30-69 starfsmenn
- 70-149 starfsmenn
- 150-399 starfsmenn
- 400-799 starfsmenn
- 800 o.fl. starfsmenn
Liðstjóri - Fjöldi liðsmanna í hverju liði
Í hverju liði er liðsstjóri sem sér um að skrá lið sitt til þátttöku og hann heldur einnig utan um daglega skráningu á netinu. Miðað er við að hvert lið samanstandi af 1-10 liðsmönnum.
Sami vinnustaður, mörg lið - Kennitalan stýrir hvaða lið telja sameiginlega
Ef fleiri en 10 hjóla á sama vinnustað er einfalt að stofna lið númer tvö, þrjú....undir kennitölu fyrirtækisins.
Þannig telur árangur liðanna sameiginlega fyrir vinnustaðinn. Það er tilvalið að skipta vinnustaðnum upp, t.d. miða við deildir á sjúkrahúsi eða útibú í bönkum. Á vefnum er auðvelt að fylgjast með árangri mismunandi liða innan vinnustaðar (með því að smella á nafn vinnustaðarins) og því lítið mál að búa til innanhúskeppni samhliða. Athugið að margir vinnustaðir t.d. innan sveitarfélaga hafa sömu kennitölu og sveitarfélagið. Ef viðkomandi vinnustaður vill keppa undir sínum merkjum er mikilvægt að notast sé við aðra kennitölu innan vinnustaðar (t.d. kennitölu eins starfsmanns).
Sami vinnustaður, mismunandi sveitarfélög
Nú geta vinnustaðir staðsettir á mörgum stöðum á landinu skráð sig saman sem einn vinnustað en samt talið með sínu sveitarfélagi. Kerfið virkar þannig að hvert lið telur með því sveitarfélagi sem það er skráð í og er því nóg að starfsstöðvar skrái sig saman sem eitt lið undir vinnustaðnum á því póstfangi sem það starfar í.
Hvernig er skilgreiningin á vinnustaður? Hvaða stafsmannafjölda á að gefa upp?
Þar sem keppt er um flesta daga og km, hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna í fyrirtækinu er mjög mikilvægt að skráður sér inn heildarfjöldi starfsmanna í fyrirtækinu (eða þeirrar einingar sem miðað er við). Það er ekki rétt að skrá einungis inn fjölda þeirra starfsmanna sem taka þátt í leiknum. Eðlilegt er að nafn liðsins endurspegli þann hóp sem að baki því stendur.
Skráning á vegalengd
Hver þátttakandi má aðeins skrá 15 daga (þá hvaða 15 daga sem er). Þetta er gert til þess að jafna leikinn milli vaktavinnufólks og annarra. Heimilt er að skrá þá vegalend sem farin er allt frá því að lagt er úr hlaði til vinnu, þangað til heim er komið í lok vinnudags. Skrá skal þá vegalengd sem farin er á milli staða en ekki innan vinnustaðar.
Skráningar- og hvatningarleikur á Rás 2 Sendið inn mynd af liðinu
Í samstarfi við Rás 2 verður eitt lið dregið úr pottinum á hverjum virkum degi í þættinum "Virkir morgnar". Veitt verða vegleg verðlaun frá Erninum. Sendið inn mynd af liðinu og takið fram nafn liðsins og segið stuttlega frá afrekum þess. Hér skal fremur bæta í en draga úr.
Myndbandaleikur Hjólað í vinnuna
Þið takið upp myndband af þátttöku ykkar í Hjólað í vinnuna og sendið okkur. Þið getið tekið upp myndband af öllu mögulegu og sent inn t.d. kynningu á ykkar liðum, sameiginlegum ferðum sem farnar eru á vinnustaðnum eða hverju því sem ykkur dettur í huga að gera á meðan á keppninni stendur. Dregið verður úr innsendum myndböndum þriðjudaginn 24. maí og hlýtur vinningshafinn vegleg verðlaun frá Reiðhjólaversluninni Erninum.
Öryggið í fyrirrúmi
Hver þátttakandi ber ábyrgð á sínu öryggi. Við hvetjum hjólagarpa og línuskautafólk til að nota hjálma og aðrar varnir og að sjálfsögðu að fara eftir umferðarlögum.
Öflug og kát liðsheild skilar árangri
Hjólað í vinnuna er gott tækifæri til að auka samheldni og heilbrigði starfsmanna
.Hér er að finna frekari hugmyndir og hvatningu til að virkja vinnufélagana með. Skorið á aðrar deildir, vinnustaði, samkeppnisaðila, sveitarfélög í heilbrigða samkeppni.
Hér er að finna upplýsingablað sem hægt er að senda áfram og prenta út.