Gott að vita » Koma sér í formið
Hjólreiðafélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða upp á fasta æfingatíma þar sem öllum er boðið að koma og taka þátt.
Formlegar æfingar hjá HFR í sumar verða sem hér segir.
Fimmtudaga kl. 18:15
Sunnudaga kl. 9:30
Allar æfingar HFR hefjast við félagsheimili HFR í Nauthólsvík(við Siglunes) síðan er hjólað sem leið liggur eftir aðalstiginum gegnum Fossvogsdal og upp fyrir stíflu í Elliðarárdal þar er áð og spjallað saman hvert skal halda.
Nánari upplýsingar hjá Alberti í síma 8996026, aj(hjá)hi.is.
Sjá www.hfr.is
Formlegar æfingar hjá Hjólamönnum eru:
Miðvikudaga kl. 18:30 fyrir götuhjól
Sunnudaga kl. 9:30 fyrir fjallahjól
Lagt er upp frá Sprengisandi við Bústaðarveg.
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Jónasson í síma 824 4555, gj(hjá)hive.is Sjá www.hjolamenn.is
Hjólreiðafélag hafnfirskra kvenna hjólar reglulega út frá Hafnarfirði Sjá hhk.blog.is/blog/hhk/
Hjólakonur stefna að því að halda námskeið fyrir konur í sumar. Tilvalið fyrir saumaklúbba, samstarfskonur og frænkuhópa að kynna sér þetta. Farið verður í stillingar og gefin sér kvennleg hjólaráð. Fylgist með á www.hjolakonur.net
Hjólarækt ferðafélagsins Útivistar stendur fyrir ferðum:
Sjá www.utivist.is/utivist/hjolaraektin/
Íslenski fjallahjólaklúbburinn
Stendur fyrir reglulegum ferðum á þriðjudagskvöldum, auk lengri ferða á sumrin. Þá heldur félagið jafnframt viðgerðanámskeið.
Sjá www.ifhk.is
Íslenski fjallahjólaklúbburinn verður með opið hús alla virka daga á meðan Hjólað í vinnuna stendur, í klúbbhúsi sínu að Brekkugötu 2. Öllum sem vilja er boðið að hjóla við, skoða aðstöðuna þeirra, njóta leiðsagnar um hjólið og fá sér kaffisopa á efri hæðinni. Opið verður frá 17 - 20 en á fimmtudögum verður opið fram eftir kvöldi.