Skráning » Hvernig fæ ég vinnufélagana með

Af hverju og hvernig á að ná vinnufélögunum af stað?
Hér er kynningarblað sem er hægt að prenta út og hengja upp á kaffistofunni og áframsenda sem hvatningu.

Frá vinnustaðnum þarf að koma jákvæð hvatning þar sem starfsmenn eru hvattir til að taka þátt í ,,Hjólað í vinnuna".
Að hjóla í vinnuna veitir flestum ráðlagða lágmarks hreyfingu til að halda sér í góðu formi. Daglegar hjólreiðar minnka ekki aðeins hættuna á ýmsum fylgikvillum hreyfingarleysis svo sem hjartasjúkdómum, sykursýki og offitu, heldur eru þær einnig ódýr og umhverfisvænn samgöngumáti. Hjólatúrinn hreinsar hugann, gefur aukinn styrk og orku og stuðlar að aukinni vellíðan.

Dýrmætasta “eign” hvers vinnustaðar er falin í þeim mannauði sem hann ræður yfir og það er því augljós ávinningur af því að stuðla að heilsusamlegri ræktun á sinni dýrmætustu “eign”.

  • Vinnustaðurinn getur tekið frumkvæðið og skipað áhugasaman einstakling eða verkefnishóp innan hans til að hafa umsjón með verkefninu.
  • Vinnustaðurinn þarf að sjá til þess að aðstaða sé til staðar til geymslu á hjólum þar sem þau eru örugg og eru ekki fyrir.
  • Fyrir áhugasama sem vilja eða þurfa að hjóla langt og hratt þarf að vera bað- og búningsaðstaða.
  • Vinnustaðir geta komið á keppni milli einstaklinga eða deilda innan þeirra og veitt hvatningarverðlaun.
  • Vinnustaðir geta komið á keppni við annað vinnustað, samkeppnisaðila eða samstarfsaðila. Vinnustaðirnir geta síðan verðlaunað þátttakendur sameiginlega.
  • Hvatning til að hjóla í vinnuna getur verið hluti af starfsmannastefnu vinnustaðarins og gott innlegg við að byggja upp jákvæða ímynd jafnt innan vinnustaðar og út á við.
  • Að hjóla í vinnuna í stað þess að keyra bíl er umhverfisvænt og því góður punktur í umhverfisstefnu vinnustaðarins. Flestar ferðir innanbæjar í bíl eru styttri en 5 km. Í þessum stuttu ferðum er vél bifreiðar köld, eldneytiseyðsla og loftmengun í hámarki.
  • Vinnustaðir eiga að hvetja starfsmenn til að hafa hjól og öryggisbúnað í góðu lagi, nota hjálm og ljós eftir atvikum.
  • Vinnustaðir getur lagt starfsmönnum til fatnað t.d. hjólatreyju í skærum lit sem sést vel í umferðinni, merkt með logo eða nafni vinnustaðar í auglýsingaskyni.


Aðilar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli