Reynslusögur » 2007
Góðan daginn , "Hjólað í vinnunna" fór vel af stað hjá okkur hér í VSB verkfræðistofu í Hafnarfirði. 18 manns eru búin að skrá sig og í morgun voru 12 menn og konur mættar á fákunum sínum. Mikill keppni er kominn milli liðanna , Koma Svo og Rjúkandi Pedalar. Allt fór stórslysalaust fram og er helst að segja frá Mikael (Rjúkandi Pedalar)sem missti vinstra sveif og fótstig uþb. 10 sinnum af hjólinu á 5 km leið. Hann keypti sér svo sterkt lím og munum við frétta á eftir hvernig það gekk. Óskar bætti duglega í km pottinn með því að hjóla 40 km í vinnuna á 500 gramma hjólinu sínu. Sævar hjólaði ekki eins mikið eins og hann ætlaði því hann læsti hjólinu sínu vandlega þegar hann var kominn í vinnuna en uppgötvaði svo þegar hann ætlaði heim að hann var ekki með lykill! Stelpurnar klikkuðu í gær nema Sigrún sem stóð sig hetjulega og barðist í gegnum mikinn rigningarskúr með 2 kassar af berlínar bollum á bögglaberanum.Hinar stelpurnar mæta svo í dag þegar þær eru búnar að festa körfurnar á hjólin sín. Við höldum áfram í dag! Kveðja , Liðstjórar
Við hérna í Leikskólanum í Stykkishólmi erum komnar alveg á fullt í hreyfingunni. Flestar völdu að hjóla eða ganga í stað þess að skauta eða skríða í vinnuna (við vildum bjóða upp á sem flesta möguleika til að hafa sem flesta með þið skiljið). Þar sem þátttakan er svo góð hjá okkur, eða 20 starfsmenn með af 21, þá þurftum við að skipta í 2 lið. Það var nú smá titringu í hópnum vegna þessa , þar sem allar hafa mikið keppnisskap, en enn hefur ekki komið til átaka. Helstu vandamálin þessa fyrstu daga eru rasssæri, gleitt göngulag og erfiðleikar við að setjast á klósett. Þetta hefur líka aðeins bitnað á faglegu starfi, þar sem starfsfólk getur ekki tekið þátt í leik á gólfi með börnunum, setið í samverustundum eða söngstundum. Við tökum heldur ekki þátt í eltingaleikjum, boltaleikjum eða öðrum hreyfileikjum, þar sem við erum að safna kröftum fyrir heimferðina. Kær kveðja Garparnir í Leikskólanum í Stykkishólmi.
“Þriðji í hjóli” og rífandi gangur hér á Krabbó, 5 lið og mikil stemmning og metnaður í gangi. Fjöldi reiðhjóla er við innganginn og bílastæðavandinn leystur!
,,Hjólað í vinnuna” hófst í vikunni og því var ekki úr vegi að draga fram hjólið, hjálminn og láta sjá sig úti meðal alls þessa hrausta útivistarfólks sem svífur um ýmist skokkandi eða hjólandi daginn langan.
Ég skeiðaði af stað út innkeyrsluna og fram hjá bílnum sem horfði þögull og hissa á aðfarirnar. -Fyrir hornið –æ, Gunnar á sjö hefði mátt setja garðaúrganginn sinn innar á gangstéttina. Rétt náði að sveigja fram hjá aspargreinum og sölnuðum laufblöðum sem gægðust út úr svörtum ruslapoka.
Niður brekkuna lá leiðin næst, ég gaf vel í og var á blússandi ferð þegar ég sá frekar umfangsmikla konu bíða við strætóskýli neðst í brekkunni.. Úbbs, ég mundi ekkert eftir flottu bjöllunni vinstra megin á stýrinu, baðaði út höndunum til skiptis og rak upp hálfkæft óp. Konan skildi sneiðina, hopaði,hálfan metra og ég sneiddi faglega framhjá. Þar skall hurð nærri hælum!
Næst tók við kafli á jafnsléttu niður þar sem ég gat virt fyrir mér umhverfið og látið hugann reika. Á sígrænkandi greinum runnanna héngu plastpokatægjur hvers konar og alls kyns rusl lá víða í beðum meðfram gangstéttinni, nútímamaðurinn klikkar ekki, það er augljóst. Ánamaðkarnir voru komnir á kreik eftir vætu næturinnar. Ég reyndi að sneiða hjá þeim, tuttugu og sjö lágu þó í valnum áður en ég hafði hjólað niður að sundlaug.
Ég hjólaði framhjá World Class, þar sem bílstjórar kepptust um að leggja gljáfægðum gæðingum sínum sem næst aðaldyrum stöðvarinnar. Skiptu þar skilti um bílastæðabönn augljóslega engu máli, þeir gætu auðvitað orðið af mínútum við að ganga lengra frá bílum sínum.
Ég þurfti að fara yfir götu skömmu seinna, það var þrautin þyngri. Bílar þutu hjá á ógnar hraða, jú þarna stansaði grannleit kona á ljósleitum Fíat. Ég æddi af stað yfir en var næstum keyrð niður af glænýjum, nýbónuðum ljósgráum jeppa. Fremur forstjóralegur, velklipptur ungur maður talandi í farsíma sat undir stýri. Hann sá mig augljóslega ekki.
Í vinnuna komst ég, þökk sé mínu rauða hjóli og bláa hjálmi. Ég var nú harla ánægð með mig og hlakkaði til að hvíla mig. Þetta tók á en auðvitað á maður að vera meira úti, stressa sig niður og njóta náttúrunnar – á hjóli. -En bíddu við, var eitthvað talað um að ,,hjóla heim úr vinnunni”?.......
Áslaug Ívarsdóttir
Þessi er frá 3. maí, svo látum við vita hvernig gengur. Þegar Björg Erlingsdóttir á Höfn tók fram reiðhjólið í morgun hafði þröstur gert sér hreiður í körfunni á hjólinu. Björg segist hafa séð mosatægjur í körfunni í gærkvöld og þá hefur þrösturinn trúlega verið byrjaður að leggja grunn að hreiðrinu en klárað verkið í nótt. Hún fór þó á hjólinu til vinnu í morgun enda tekur hún þátt í átakinu Hjólað í vinnuna og bíllinn auk þess bilaður. Hún segist spennt að vita hvort þrösturinn haldi áfram að innrétta hreiðrið í kvöld og verði jafnvel búinn að verpa í fyrramálið. Ef svo fer ætlar hún að taka körfuna af hjólinu svo þrösturinn geti lagst á í friði. Það er haft á orði á vinnustað Bjargar að þröstinn hafi langað í hjólhýsi og því valið þennan hreiðustað. Guðný Svavarsdóttir, Höfn.
Fengum þessa skemmtilega vísu senda frá Unni Sólrúnu Bragadóttur.
Á farartækjum ýmis konar ferðumst við öll flugvél nota margir sem ber þá yfir fjöll bílar eru algengastir í óhófi þá nýtum en allt of lítið göngum ef til framtíðar lítum. ____ Reiðhjólið er frábært mér finnst það engu líkt fáðu þér í einum grænum endilega slíkt það brunar með þig áfram á ótrúlegum hraða og ósköp smáar líkur á þú hljótir af því skaða. ___________ Og þú sem ert að hjóla að þér útilofti andar útivist og ánægju á snjallan hátt þar blandar og ekki ertu að menga svo mikið er víst á milli staða hljóðlega þú einfaldlega skýst.
SBD- group Liðstjórnun í vaktavinnu. Halló. Einn af þeim stóru vinnustöðum sem er í keppninni er Landspitalinn og er mitt lið af slysadeildinni. Þar eru tvö lið og há þau harða baráttu sín á milli. Vaktarvinnan gerir liðstjórnun svolítið erfiðari, þar sem maður hittir aldrei alla meðlimi liðsinns saman. En hvatningar og upplýsingar fara fram með e-maili og uppýsingatöflu á kaffistofu. Fólk er einnig í mismikilli vinnu og sumir þegar farnir að hafa áhyggjur að ná ekki að taka þátt því mætingin er ekki 14x yfir tímabilið /þetta hvetur jafnvel til aukavakta :) Áfram SBD -group Kveðja Sigrún G. Pétursdóttir, liðstjóri.
Týndi skórinn
Einn góðviðrisdaginn síðasta sumar ákvað ég að hjóla í vinnuna. Ég setti fötin mín í lítinn bakpoka og skóna í svona ólar sem eru utan á pokanum (pokinn var svo lítill að skórnir komust ekki í hann). Svo hjóla ég af stað, alsæl yfir þessari frábæru hugmynd hjá mér, í vinnuna . Þegar ég kem þangað átta ég mig á því mér til mikillar skelfingar að ég hef týnt öðrum skónum á leiðinni. Ég sá sjálfa mig ekki alveg í anda vera á tánum í vinnunni allan daginn og geta ekki staðið upp frá skrifborðinu. Hefði kannski getað verið huggulegt, "Æ ertu ekki til í að færa mér kaffi með smá mjólk og súkkulaðikex - get nebblilega ekki farið á tánum fram í kaffistofu!"
Ég fékk samstarfskonu mína til að rúnta með mér leiðina sem ég hjólaði í vinnuna. Við leituðum á öllum stöðum þar sem skórinn hefði getað farið. Þrátt fyrir mikla leit fundum við ekki skóinn. Ég hugsaði mér nú bara gott til glóðarinnar og sá að þetta var nú bara gott tækifæri til að kaupa mér nýja skó. Þegar ég var svo á leiðinni heim var ég alltaf svona að kíkja í kring um mig hvort ég sæi skóinn en var eiginlega alveg hætt að gera mér vonir um það en viti menn allt í einu sá ég glitta í græna skóinn í grasinu við gangstéttina, ég náttúrlega krossbremsaði svo að það lá við stórslysi. Ég var svona eftir á mátulega sæl yfir að hafa fundið fj.... skóinn. Ég var bara eiginlega hálf fúl - ég var alveg búin að sjá fyrir mér nýju skóna. Hjólakveðja Guðný
Snælandsskóli tekur í ár þátt í keppninni í fyrsta sinn. Þegar eru 5 lið skráð í keppnina. Liðin keppa innbyrðis innan skólans og hafa hannað hvert sitt barmmerki og keppst er um að yrkja baráttusöngva fyrir liðin. Starfsmenn flykkjast að tölvunum í frímínútum til að mæla vegalengdir á Borgarvefsjá.is. Umferð hjólandi og gangandi fólks um Fossvogsdalinn í morgunsárið hefur snaraukist undanfarna daga og greinilegt að þátttakendur eru margir á ferð um hjólreiðastíga borgarinnar í tilefni af þessari skemmtilegu keppni. Kristín Arnardóttir
Við hjá Danfoss hf erum að taka þátt í annað sinn. Við erum þrír sem höldum uppi merki fyrirtækisins, en erum með stöðuga pressu á starfsfélaga okkar að taka þátt. Var að hugsa það í gær á leiðinni heim, það er sama hvert maður er að fara það er alltaf mótvindur. Þá var mér hugsað til framboðs Sólskinsflokksins hér um árið, þeir lofuðu öllum hjólreiðamönnum meðvindi ef þeir kæmust að. Hvernig væri að einhver af núverandi stjórnmálaflokkum mundu taka þetta upp. Þá mundu miklu fleiri hjóla. Jóhannes Skarphéðinsson
Vogaskóli í Reykjavík er með um 60 starfsmenn. Þátttakendur í átakinu Hjólað í vinnuna eru nú þegar orðnir 30, þ.e. þrjú lið og það stefinir allt í það að þau verði fleiri. Einn sem ekki var með í byrjun kom hjólandi um 10 km leið í dag og átti svo eftir að hjóla aftur til baka að loknum vinnudegi og hann ætlar að halda áfram og það er öruggt að í nýja liðinu verða fleiri sem nú hafa smitast af kappsemi þeirra sem byrjuðu strax. Margrét Eiríksdóttir.
Hvítpúðruð fjöll og hiti, rétt lufsas upp fyrir núllið. Átakið fór mjög vel af stað, enda eindæma blíða í síðustu viku, en nú eru góð ráð dýr. Sem betur fer eru tvö lið innan fyrirtækisins og reynum við liðstjórar að hvetja fólk með áskorunum. Við í liði Speedy Gonzales ætlum auðvitað að standa okkur betur en FireFox og að launum fá boð í mexikanska veislu með nachos, sombreros og mariachi-tónlist. Ef ekki þá verðum við að bjóða FireFox liðinu í veislu með FireFox þema... hvað ætti það að vera?Refaveiðar? Sigríður Hrefna Pálsdóttir, liðstjóri Speedy Gonzales
Verksmiðjuhópur - Vífilfell. Í verksmiðjuhópnum okkar er hann Siggi okkar Ben. Siggi hefur ekki hreyft sig mikið á síðustu árum af heilsufarsástæðum, þótt erfitt að ganga og verið þreklaus. Þessi hetja fór í hjartaaðgerð í vetur og hefur verið í stöðugri sókn síðan. Hann fór að ganga í vinnuna og nú er hann búinn að dusta rykið af hjólinu sínu og láta setja á það kílómetramæli, takk fyrir.
Hann er því orðinn virkur þáttakandi í keppninni "Hjólað í vinnuna" og hans kílómetrar og þáttökudagar eru samviskusamlega skráðir. Þarna sjáum við hverju hægt er að áorka bara ef viljinn er fyrir hendi. Þarna er keppnin virkilega að ná tilgangi sínum. Hér eru líka ólíklegustu menn farnir að ganga og hjóla og öllum finnst þetta bara gaman, sumir kannski bara búnir að gleyma því hvað það er gott að hreyfa sig. Hópeflið, hvatning og keppni innanhúss er ótrúlega skemmtilegur leikur.
Áfram og allir út að hjóla. Bestu kveðju Guðrún Gunnarsdóttir, gæðagenginu hjá Vifilfelli.
Góðan daginn. Við hér hjá Sölku Fiskmiðlun erum með í átakinu hjólað í vinnuna í fyrsta skipti. Okkur gengur bara frekar vel, mun betur en við þorðum að vona í byrjun. Í gær, í tilefni afmælis liðsstjórans, ákváðum við að fara saman lengri leiðina í vinnuna og hjóluðum við sveitahringinn í Dalvíkurbyggð (29 km. í vinnuna). Ein okkar var að hjóla þetta í fyrsta skipti og sagðist hafa verið afar þreytt í gærkvöldi, en að samaskapi afar ánægð með að vera búin að gera þetta. Þarna hjólar maður úti í náttúrunni laus frá nær allri umferð (fórum af stað uppúr 6 að morgni) og nutum fuglalífsins. Sáum tildæmis að Krían var komin enda á hún að vera komin á afmælisdaginn minn og sáum nokkurra klukkutíma gamalt folald. Þetta gekk rosalega vel, ekkert klikkaði enda vorum við bara 97 mínútur sem er nú bara ágætt af okkar hálfu. Við þökkum fyrir þetta frábæra framtak, þetta er svo gaman, fylgjast með hvað aðrir eru að gera og reyna að keppa við þá. Bestu kveðjur, Lilja Björk liðsstjóri Hjallaspíranna.
Heil og sæl. Okkur langaði að vekja athygli ykkar á því að Biskupsstofa útbjó stutt myndband um þátttöku sína í þessu frábæra átaki. Það er hægt að horfa á það og lesa stutta frétt á vef Þjóðkirkjunnar. Vefslóðin er:http://www.kirkjan.is/?frettir/2007?id=194 Bestu kveðjur, Árni Svanur Daníelsson og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
Það er alltaf gaman að taka þátt í þessu verkefni, það drífur mann af stað. Akranes er kjörið til að hjóla, allt svo slétt. Helstu vandamálin eru glerbrot. Eins gott að vera vel vakandi á hjólinu. Sumir ganga reyndar í vinnuna, en það er líka hið besta mál. Kveðja Halldóra
Heil og sæl. Hér í Glergenginu hefur gengið á ýmsu, hetjan okkar hún Sigrún lenti í árekstri við krakka sem teymdi hjólið sitt í veg fyrir hana, svo núna hjólar Sigrún sína km. með öðrum fæti, hinn fór af við öxl. Hún hefur hjólað með barnið í leikskólann og síðan í vinnuna eins og ekkert sé. Ég fór af stað um daginn í góðu verðri og ætlaði að vera snögg á Stuðlahálsinn, viti menn er ekki búið að saga í sundur göngustíga og götur? Þetta var nú rétti tíminn til að leggja ljósleiðarana. En með góða skapið í farteskinu og flugnaskít í andlitinu hélt ég á hjólinu yfir þessar hindranir. Þau voru nú eitthvað að furða sig á klæðnaðinum á föstudaginn. Þó maður vilji líta þokkalega út þegar maður þeysist í vinnuna ( smá mont.) Pétur situr ber að ofan yfir "Gæðastöðlum" á meðan hann kælir sig niður. Strákarnir eru "öfundsjúkir" yfir athyglinni sem Pétur fær hjá stelpunum, en svona er þetta engin afrek,engin athygli..Það hefur aldeilis verið tekið á því síðustu daga. Enda margir fegnir að losna undan "hjólað í vinnuna -pressunni". Palli El sem hefur hjólað í 16 ár í vinnuna hefur ekki getað tekið þátt í þessum leik, hjólið bilaði akkúrat þegar átakið byrjaði og hefur lent í skömm fyrir að vera ekki með. Það eru samt ótrúlega margir sem hafa tekið þátt og haft mjög gaman af. Þetta er glæsileg frammistaða hjá okkur í Vífilfelli. Knus og kram Þura, Þuríður Ólafsdóttir.
Ég ætla að segja ykkur aðeins frá okkur hér í Garðinum. Við stofnuðum tvö lið og nefndum þau Táp og Fjör og voru 10 í hvoru liði. Þetta gekk mjög vel hjá okkur, þó komu smá frávik s.s. utanlandsferð, nemendaferðalag og veikindi, svo ekki gátu allir verið með allan tímann.
Skólastjórinn, Erna Sveinbjarnardóttir, dreif í að kaupa sér nýtt hjól og var góð fyrirmynd í átakinu. Við tvær erum elstar hér í skólanum 63ja og 64ra ára og erum báðar duglegar að hjóla og auðvitað notum við hjálma. Fleiri eru hjólandi, enda mjög gott að hjóla hér í Garðinum, engar hæðir!
Ein tveggja barna móðir og á von á því þriðja í ágúst, ákvað að ganga þótt hún þyrfti fyrst að fara með yngri soninn til dagmömmu og þann eldri á leikskólann. Þetta var skemmtileg tilbreyting í daglega lífið og ég sé ekki betur en það skili sér í meiri áhuga á að nota eigin orku til að komast á milli staða, enda er okkur engin vorkunn, því hér er allt í göngufæri sem við þurfum á að halda. Með bestu kveðju, Kristjana H. Kjartansdóttir liðstjóri Táps.
Hér í GT (Grunnskólanum á Tálknafirði) hafa starfsmenn tekið þátt í átakinu og lagt í það mikinn metnað að ganga eða hjóla í vinnuna sína. Til að auka enn frekar slagkraft átaksins gekkst græna nefndin í skólanum fyrir hreyfingarátaki meðal nemenda sem og þemadaga sem gengu út á umhverfisvernd, umhverfis- og útikennslu og vinnu með endurnýtanleg efni. Þátttaka nemenda í þessu heilsuátaki sem stóð yfir dagana 7. - 12. maí var mjög góð og endurspeglar finnst mér áhuga starfsfólks GT á þátttöku á átaki ÍSÍ Niðurstöðurnar fylgja með í smá skjali sem birt var á lokadegi heilsuátaksins. Þann dag, kosningadaginn 12. maí, var nokkurskonar uppskeruhátíð þar sem sýnd voru verk sem nemendur höfðu unnið að á þemadögunum, hvatt var til þess að allir kæmu hjólandi eða gangandi og síðan var frítt í sund í sundlaug Tálknafjarðar fyrir alla, bæði bæjarbúa og gesti. Við í grænu nefnd GT sem er umhverfisnefnd skólans vorum mjög ánægð með þátttöku bæjarbúa í þessum degi. Með þakklæti fyrir að fá að taka þátt.Starfsfólk og nemendur GT, umsjónarmaður Ingólfur Kjartansson
Ps.Það skal tekið fram að ef þær ferðir sem nemendur fóru eru reiknaðar saman, en að meðaltali er um að ræða um 2 kílómetra hvora leið, þá má sjá að nemendur GT hjóluðu eða gengu alls 210x4= 840 kílómetra þessa 5 daga sem átakið stóð. Það er allgóð viðbót við þá kílómetra sem starfsfólk GT hefur hjólað síðustu vikur (476 km). Nemendur GT eru 45 og af þeim eru 43 gjaldgengir, meðaltalið er 19,5 km á hvern nemanda þessa viku.