Skráning » Leiðbeiningar um skráningu

Kynntu þér reglurnar vel áður en þú skráir liðið þitt til leiks. Ef þú lendir í vandræðum er alltaf hægt að hafa samband í síma 514 4000 eða senda okkur línu á jona@isi.is eða kristin@isi.is.

Keppnin stendur frá 4.-24. maí 2011 að báðum dögum meðtöldum.

Mikilvægt er að kynna sér vel eftirfarandi atriði sem eru hér fyrir neðan: 

  • hámarksfjölda í liði
  • mörg lið á sama vinnustað
  • vinnustaður með starfsstöðvar í mörgum sveitarfélögum
  • hvaða starfsmannafjölda á að gefa upp 
  • skráningareyðublöð                                                                                                                                                     

Liðstjóri - Hámarks fjöldi liðsmanna í hverju liði er 10.
Í hverju liði er liðsstjóri sem sér um að skrá lið sitt til þátttöku og hann heldur einnig utan um daglega skráningu á netinu.
Miðað er við að hvert lið samanstandi af 1-10 liðsmönnum. Ef vinnustaðurinn er fámennur er tilvalið að tveir eða fleiri vinnustaðir slái saman í lið.

Sami vinnustaður, mörg lið - Kennitalan stýrir hvaða lið telja sameiginlega
Ef fleiri en 10 hjóla á sama vinnustað er einfalt að stofna lið númer tvö, þrjú....undir kennitölu vinnustaðarins. Þannig telur árangur liðanna sameiginlega fyrir vinnustaðinn. Á vefnum er auðvelt að fylgjast með árangri mismunandi liða innan vinnustaðar (með því að smella á nafn vinnustaðarins) og því lítið mál að búa til innanhúskeppni samhliða.
Athugið að margir vinnustaðir t.d. innan sveitarfélaga hafa sömu kennitölu og sveitarfélagið. Ef viðkomandi vinnustaður vill keppa undir sínum merkjum er mikilvægt að notast sé við aðra kennitölu en sveitarfélagsins (t.d. kennitölu eins starfsmanns).

Vinnustaður með starfsstöðvar í mörgum sveitarfélögum
Vinnustaðir sem eru með starfsstöðvar í mörgum sveitarfélögum geta núna tekið þátt saman sem einn vinnustaður en jafnframt geta allir starfsmenn tekið þátt með sínu sveitarfélagi. Kerfinu hefur verið breytt frá því í fyrra og nú telur hvert lið með því sveitarfélagi sem það er skráð í, ekki vinnustaðurinn í heild sinni. Starfsstöðvar skrá sig því saman sem eitt lið undir sínum vinnustað og telja þá með vinnustaðnum og einnig því sveitarfélagi sem liðið er skráð í.

Hvernig er skilgreiningin á vinnustaður? Hvaða stafsmannafjölda á að gefa upp?
Þar sem keppt er um flesta daga og km, hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna á vinnustaðnum er mjög mikilvægt að skrá inn heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum (eða þeirrar einingar sem miðað er við). Það er ekki rétt að skrá einungis inn fjölda þeirra starfsmanna sem taka þátt í leiknum.

Með því að smella hér getur þú nálgast ýtarlegar leiðbeiningar um það hvaða starfsmannafjölda á að skrá á vinnustaðnum þínu.

Keppt er í 7 flokkum eftir fjölda starfsmanna á vinnustaðnum 
3-9 starfsmenn
10-29 starfsmenn
30-69 starfsmenn
70-149 starfsmenn
150-399 starfsmenn
400- 799 starfsmenn
800 o.fl starfsmenn.


Athugið að minnsta flokknum hefur verið breytt þannig að nú má minnst skrá 3 sem starfsmannafjölda á vinnustað. Einyrkjar og minni vinnustaðir geta brugðist við þessu með því að slá saman í lið. Þar sem keppt er um flesta daga og km, hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna á vinnustaðnum geta öflugir einyrkjar rúllað upp keppninni í minnsta flokknum. Er hér leitast við að jafna aðeins leikinn í þessum flokki.

Hér er hægt að prenta út forskráningarblað sem hægt er að hengja upp á vinnustöðunum svo starfsmenn geti skráð sig til leiks.

Hægt er að prenta út skráningarblað 1 hér og skráningarblað 2 hér þar sem liðsmenn geta skráð inn árangur sinn á meðan átakinu stendur. .

Með því að smella hér getur þú prentað út almennar leiðbeiningar um Hjólað í vinnuna.

Með því að smella hér getur þú nálgast ítarlegar leiðbeiningar um það hvernig á að skrá vinnustað til leiks í Hjólað í vinnuna. Hér getur þú svo nálgast upplýsingar um það hvernig á að skrá nýtt lið undir vinnustað sem þegar hefur verið skráður til leiks.



Aðilar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli