Gott að vita » Hjólreiðar sem samgöngumáti
Hjólreiðar sem samgöngumáti
- kostir hjólreiða
- Hjólafærni
- Dr. BÆK
Hjólreiðar – leiðin til framtíðar
Kostir hjólreiða
- Hjólreiðar til og frá vinnu og skóla er frábær leið til að ná daglegum skammti af hreyfing sem Lýðheilsustöð mælir með eða um 30 mínútur á dag fyrir fullorðna og 60 mínútur á dag fyrir börn.
- Hjólreiðar spyrna við hreyfingarleysi og offitu.
- Daglegar hjólreiðar lækka tíðni vöðva- og liðamótasjúkdóma, krabbameins, kransæðasjúkdóma, sykursýkis og þunglyndis, og lengir lífið um mörg ár.
- Hjólreiðar geta sparað einstaklingum, vinnustöðum og samfélaginu verulegar fjárhæðir vegna lægri tíðni alvarlegra sjúkdóma, slysa og fækkunar veikindadaga. Auk þess að lækka eldsneytiskostnað, bílastæðagjöld o.fl.
- Reiðhjól eru mun ódýrara í rekstri en til dæmis einkabíll númer tvö.
- Minni olíuþorsti dregur úr viðskiptahalla og olíustríðum.
- Engin loftmengun, hverfandi hávaðamengun og reiðhjól krefjast mun minna pláss.
- Hjólreiðamenn anda að sér minni mengun en bílstjórar, jafnvel á akbrautum (skv. ESB rannsókn).
- Með aukinni hjólreiðaiðkun mun umferðarþungi á akbrautum minnka og bílaumferð verður greiðari.
- Í Kaupmannahöfn hjóla rúmlega 30% í vinnu – og svipað margir í Oulu í norður Finnlandi. Þetta er gerlegt.
- Útsýnið frá hjólinu er frábært. Við þurfum heldur ekki finna stærðarinnar stæði til að stoppa og spjalla.
- Auknar hjólreiðar gera samfélagið okkar skemmtilegra, fallegra, rólegra og barnvænna.
Hjólafærni
Fyrirlestrar og námskeið í boði fyrir einstaklinga og fyrirtæki
- Samgönguhjólreiðar, hádegisfyrilestur um samvinnu í umferðinni, hjólaleiðir, aðbúnað og ávinning fyrirtæjka. 45 min. á 20.000 kr.
- Gerum hjólið klárt! Dr. BÆK og hjólahjúkkan mæta með tæki og tól og leiðbeina um helstu vorverk hjólreiðamannsins;þrif og stillingar á stelli, bremsur og gíra. Þátttakendur mæta með sín eigin hjól og fá leiðsögn í að gera hlutina sjálfir og vottorð um heilsu hjólsins frá Dr. BÆK (búnaður-æfing-kjarkur). 120 min. Dr. BÆK einn á 20.000 kr. + hjólahjúkkan = 34.000 kr.
- Hjólum og verum klár! Fyrirlestur um samgönguhjólreiðar og námskeið í hjólaviðgerðum á eftir; sprungið dekk, bremsur og gírar. Ein kvöldstund sem hefst með fyrirlestri. Síðan er kaffi og loks sýna tveir fagmenn og kenna dekkjaviðgerðir og einfaldar viðhaldsviðgerðir á bremsum og gírum. 180 min. á 45.000kr.
- Hjólafærni á vettvangi, Fámenn einskakennsla, 2 - 4 í hóp, þar sem hjólað er undir leiðsögn hjólafærnikennara í umferð og um gatnamót. 120 min. á 12.000 kr.
Auk þess er boðið upp á aðstoð og hugmyndir að þrautabrautum, Hjólympíuleikjum fyrirtækja og skipulaggningu hjólaferða. Allar nánari upplýsingar gefur Sesselja Traustadótti, s: 864 2776.
Heimasíða: www.hjolafaerni.is