Um Hjólað í vinnuna » Leiðbeiningar um skráningu
Keppnin stendur frá 5.-25. maí 2010 að báðum dögum meðtöldum.
Mikilvægt er að kynna sér vel eftirfarandi atriði sem eru hér fyrir neðan:
- hámarksfjölda í liði
- mörg lið á sama vinnustað
- hvaða starfsmannafjölda á að gefa upp
- skráningareyðublöð
Liðsstjóri - Hámarks fjöldi liðsmanna í hverju liði er 10.
Í hverju liði er liðsstjóri sem sér um að skrá lið sitt til þátttöku og hann heldur einnig utan um daglega skráningu á netinu. Liðsstjórinn getur einnig gefið sínum liðsmönnum upp netfangið og lykilorðið sem liðið er skráð inn í kerfið og þeir skráð árangur sinn sjálfir. Miðað er við að hvert lið samanstandi af 1-10 liðsmönnum. Ef vinnustaðurinn er fámennur er tilvalið að tveir eða fleiri vinnustaðir slái saman í lið.
Sami vinnustaður, mörg lið - Kennitalan stýrir hvaða lið telja sameiginlega
Ef fleiri en 10 hjóla á sama vinnustað er einfalt að stofna lið númer tvö, þrjú....undir kennitölu vinnustaðarins. Þannig telur árangur liðanna sameiginlega fyrir vinnustaðinn. Á vefnum er auðvelt að fylgjast með árangri mismunandi liða innan vinnustaðar (með því að smella á nafn vinnustaðarins) og því lítið mál að búa til innanhúskeppni samhliða.
Athugið að margir vinnustaðir t.d. innan sveitarfélaga hafa sömu kennitölu og sveitarfélagið. Ef viðkomandi vinnustaður vill keppa undir sínum merkjum er mikilvægt að notast sé við aðra kennitölu en sveitarfélagsins (t.d. kennitölu eins starfsmanns).
Hvernig er skilgreiningin á vinnustaður? Hvaða stafsmannafjölda á að gefa upp?
Þar sem keppt er um flesta daga og km, hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna á vinnustaðnum er mjög mikilvægt að skrá inn heildarfjölda starfsmanna (eða þeirrar einingar sem miðað er við). Það er ekki rétt að skrá einungis inn fjölda þeirra starfsmanna sem taka þátt í Hjólað í vinnuna.
Með því að smella hér getur þú nálgast ýtarlegar leiðbeiningar um það hvaða starfsmannafjölda á að skrá hjá vinnustaðnum þínum.
Hér er hægt að prenta út forskráningarblað sem hægt er að hengja upp á vinnustöðunum svo starfsmenn geti skráð sig til leiks.
Einnig er hægt að prenta út skráningarblað 1 hér og skráningarblað 2 hér sem hægt er að hengja upp og biðja liðsmenn um að skrá inn sinn árangur.
Keppt er í 7 flokkum eftir fjölda starfsmanna á vinnustaðnum
3-9 starfsmenn
10-29 starfsmenn
30-69 starfsmenn
70-149 starfsmenn
150-399 starfsmenn
400 - 799 starfsmenn
800 ofl. starfsmenn
Athugið að minnsta flokknum hefur verið breytt þannig að nú má minnst skrá 3 sem starfsmannafjölda í fyrirtæki. Einyrkjar og minni fyrirtæki geta brugðist við þessu með því að slá saman í lið. Þar sem keppt er um flesta daga og km, hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna í fyrirtæki geta öflugir einyrkjar rúllað upp keppninni í minnsta flokknum. Er hér leitast við að jafna aðeins leikinn í þessum flokki.
Með því að smella hér getur þú prentað út almennar leiðbeiningar um skráningu í Hjólað í vinnuna.
Með því að smella hér getur þú nálgast ýtarlegar leiðbeiningar um það hvernig á að skrá vinnustað til leiks í Hjólað í vinnuna. Hér getur þú svo nálgast upplýsingar um það hvernig á að skrá nýtt lið undir vinnustað sem þegar hefur verið skráður til leiks.
Eyðublöð og leiðbeiningar sem hægt er að prenta út:
Leiðbeiningar um það hvaða starfsmannafjölda á að skrá
Forskráningarblað
Skráningarblað 1
Skráningarblað 2
Skrá vinnustað til leiks
Stofna nýtt lið undir vinnustað