Um Hjólað í vinnuna » Keppnisgreinar

Keppnisgreinar eru tvær

Keppt er um:

1.  Flesta þátttökudaga, hlutfallslega m.v. heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum.
2.  Flesta kílómetra, hlutfallslega m.v. heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum.

Þegar árangur vinnustaðar er reiknaður út er heildarfjöldi starfsmanna á vinnustaðnum notaður. Fjöldi daga og kílómetra sem vinnustaðurinn nær er deilt með heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum og fæst þá út meðaltal á hvern starfsmann á vinnustaðnum. Sá sem nær hæstu meðaltali vinnur. Því er best að reyna að ná sem flestu samstarfsfólki með, sem oftast.

Með því að smella hér má nálgast útskýringar og dæmi á útreikningum á árangri vinnustaða Hjólað í vinnuna.

Veittir eru viðurkenningarskildir fyrir 3 efstu sætin í hverjum fyrirtækjaflokki í báðum keppnisgreinum.

Hér getur þú nálgast viðurkenningarskjal sem hægt er að prenta út og verðlauna þátttakendur á þínum vinnustað með að keppni lokinni.

 

Hér er mynd af hluta hópsins á verðlaunapalli í síðustu keppni sem CLO racing team tók þátt í.  Komums að því að það er betra að vera í svörtum hjólabuxum.



Aðilar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli