Um Hjólað í vinnuna » Saga Hjólað í vinnuna
Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu “Hjólað í vinnuna”. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast þau átta ár sem verkefnið hefur farið fram (hér í töflunni fyrir neðan má sjá samanburð á milli ára). Í upphafi stóð átakið yfir í eina viku, næstu þrjú ár í tvær vikur og síðustu fjögur ár í þrjár vikur. Hjólað í vinnuna mun fara fram dagana 4. – 24. maí 2011.
Tölfræði Hjólað í vinnuna
|
Ár |
Vinnustaðir |
Lið |
Þátttakendur |
km |
Hringir í kringum landið |
Hringir í kringum jörðina |
|
2003 |
45 |
71 |
533 |
21,967 |
16,4 |
0 |
|
2004 |
162 |
289 |
2510 |
93,557 |
69,9 |
2,3 |
|
2005 |
254 |
488 |
5076 |
173,762 |
129,9 |
4,3 |
|
2006 |
246 |
539 |
5296 |
230,543 |
172,18 |
5,8 |
|
2007 |
409 |
913 |
6642 |
417,106 |
311,5 |
10,4 |
|
2008 |
431 |
1017 |
7065 |
410,398 |
306,5 |
10,2 |
|
2009 |
468 |
1147 |
8041 |
493.202 |
368,34 |
12,3 |
|
2010 |
551 |
1347 |
9451 |
647.865 |
483,84 |
16,2 |
|
2011 |
694 |
1628 |
11271 |
830.486 |
620,23 |
20,7 |
Í samræmi við aukningu á fjölda þátttakenda hefur fjöldi kílómetra sem hjólaðir hafa verið aukist gríðarlega. Þess má geta að árið 2003 og 2004 var einungis mögulegt að skrá inn 5 daga, árið 2005 og 2006 var hægt að skrá inn 10 daga og árin 2007 og 2009 var hægt að skrá inn 14 daga. Árið 2008 var hægt að skrá inn 12 daga. Árið 2010 var hægt að skrá 13 daga og í ár verður hægt að skrá 15 daga.
Yfirlit yfir ferðamáta þátttakenda Hjólað í vinnuna. Hlutfall þeirra ferða sem farnar eru.
|
Ár |
Hjólandi |
Gangandi |
Með strætó |
Á línuskautum |
Annað |
|
2003 |
|
|
|
|
|
|
2004 |
|
|
|
|
|
|
2005 |
56,44% |
41,46% |
1,7% |
0,1% |
0,3% |
|
2006 |
59,98% |
38,37% |
1,18% |
1,17% |
0,29% |
|
2007 |
63,98% |
33,37% |
1,7% |
0,06% |
0,3% |
|
2008 |
68,58% |
29,27% |
1,92% |
0,07% |
0,16% |
|
2009 |
67,64% |
30,55% |
1,43% |
0,08% |
0,31% |
|
2010 |
72,58% |
25,55% |
1,55% |
0,06% |
0,26% |
|
2011 |
73.33% |
24,46% |
1,77% |
0,06% |
0,38% |
Vefsíðan hjoladivinnuna.is gegnir mjög mikilvægu hlutverki þar sem þátttakendur hafa aðgang að ýmsum fróðleik, upplýsingum um sjálfa keppnina, úrslitum og styrktaraðila.