Um Hjólað í vinnuna » Gróðursetning í Heiðmörk

Gróðursetning í Heiðmörk fimmtudaginn 19. maí

Hjólað í vinnuna í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir gróðursetningu á plöntum í Heiðmörkinni fimmtudaginn 19. maí frá 17 - 19. Stefnt er að því að útbúa "Hjólað í vinnuna" svæði í Heiðmörkinni þar sem á hverju ári yrðu gróðusettar jafn margar plöntur og fjöldi vinnustaða í átakinu.

Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að mæta við bæinn á Elliðavatni (Sjá leið á kortinu hér að neðan) kl. 17:00 en þaðan verður svo hjólað/ gengið saman áleiðis á þann stað sem gróðursetningin fer fram. Við hvetjum að minnsta kosti einn frá hverjum vinnustað til að mæta og gróðursetja eina plöntu fyrir sinn vinnustað. Einnig kjörið fyrir lið eða vinnustaði að nýta tækifærið í góða hjólreiðaferð.

Nánari upplýsingar um gróðursetninguna má nálgast hjá Jónu Hildi og Kristínu Lilju, jona@isi.is eða kristin@isi.is.

Kort af Heiðmörkinni má nálgast hér.

 

Annað kort þar sem sýnd er hjóleið þar sem hægt er að sleppa við Suðurlandsveginn.



Aðilar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli