Um Hjólað í vinnuna » Fræðslufundir
Fræðslufundir ÍSÍ, Lýðheilsustöðvar og Hjólafærni um samgönguhjólreiðar
Þema alþjóðadags hreyfingar á Íslandi þann 10. maí er samgönguhjólreiðar. Árlega hvetur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin aðildarþjóðir sínar til að halda alþjóðadag hreyfingar hátíðlegan. Tilgangur dagsins er að minna á lykilhlutverk daglegrar hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan fólks á öllum aldri. Þema alþjóðadags hreyfingar á Íslandi þetta árið er samgönguhjólreiðar sem er ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að hjóla eða ganga á milli áfangastaða. Auk þess sem ferðatíminn er nýttur til ókeypis heilsuræktar er hægt að spara kostnað vegna einkabílsins, draga úr umferðarþunga og stuðla að heilnæmara lofti.
Í tilefni dagsins munu Lýðheilsustöð og ÍSÍ ásamt Hjólafærni á Íslandi standa fyrir fræðslufundum um samgönguhjólreiðar í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði og Selfossi. Þar verður m.a. farið yfir ýmis hagnýt atriði sem auka ánægju og færni hjólandi vegfarenda í umferðinni, farið stuttlega yfir sögu Hjólað í vinnuna og fjallað um gildi hreyfingar. Einnig verða fulltrúar frá bæjarstjórnum á staðnum og svara fyrirspurnum þátttakenda um samgöngumál sveitarfélgasins.
Fræðslufundirnir verða á eftirfarandi stöðum:
Mánudaginn 10. maí í Reykjavík í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal að Engjavegi 6, 3 hæð, F sal kl: 12:00 - 13:00. Dagskránna má finna hér.
Þriðjudaginn 11. maí á Akureyri í félagsheimili Þórs Hamri kl: 12:00 - 13:00. Dagsrkánna má finna hér.
Miðvikudaginn 12. maí á Ísafirði, Stjórnsýsluhúsinu kl: 12:00 - 13:00. Dagskránna má finna hér.
Þriðjudaginn 18. maí á Selfossi hjá Héraðssambandinu Skraphéðni í Selinu kl: 17:30 - 18:30. Dagsrkánna má finna hér.