Gott að vita » Umferðaröryggi hjólreiðamanna
Eftirfarandi upplýsingar eru fengnar af heimasíðu Umferðarstofu
Öryggisbúnaður reiðhjóla
-
Bremsur í lagi á fram og afturhjóli
-
Bjalla - ekki má nota annan hljóðmerkjabúnað
-
Ljós að framan - hvítt eða gult (ef hjólað er í myrkri eða skertu skyggni)
-
Rautt ljós að aftan (ef hjólað er í myrkri eða skertu skyggni)
-
Þrístrennd glitaugu - rautt að aftan og hvítt að framan
-
Keðjuhlíf - til varnar því að fatnaður festist í keðjunni
-
Teinaglit í teinum
-
Glitaugu á fótstigum
-
Lás
Leggja ætti áherslu á að nota einnig:
-
Hjólvara (bílafælu) - viðvörunarstöng með endurskini sem hægt er að beina út frá hjólinu
-
Standara
Reiðhjólahjálmur
- Hvaða gagn er að hjólreiðahjálmum?
Höfuðmeiðsl eru alvarlegustu áverkar sem hljótast af hjólreiðaslysum. Notkun hlífðarhjálms kemur ekki í veg fyrir slysin en dregur úr alvarleika þeirra og minnkar líkurnar á alvarlegum höfuðmeiðslum. Hjálmur getur greint á milli heilahristings og höfuðkúpubrots og jafnvel lífs og dauða. Sérstaklega er mikilvægt að börn noti hlífðarhjálm við hjólreiðar enda eru höfuð þeirra minni og viðkvæmari en þeirra sem eldri eru.
Höfuðmeiðsl eru alvarlegustu áverkar sem hljótast af hjólreiðaslysum. Notkun hlífðarhjálms kemur ekki í veg fyrir slysin en dregur úr alvarleika þeirra og minnkar líkurnar á alvarlegum höfuðmeiðslum. Hjálmur getur greint á milli heilahristings og höfuðkúpubrots og jafnvel lífs og dauða. Sérstaklega er mikilvægt að börn noti hlífðarhjálm við hjólreiðar enda eru höfuð þeirra minni og viðkvæmari en þeirra sem eldri eru.
Veljið hjálm af kostgæfni. Góður hjálmur uppfyllir þessar kröfur:
- er prófaður af viðurkenndri stofnun og merktur með CE-merki
- verndar enni, hnakka, gagnaugu og koll
- passar vel, situr þétt á höfðinu, rennur ekki aftur á hnakka
- hindrar hvorki sjón né dregur úr heyrn
- er mjúkur næst höfðinu
- er léttur og með loftopum
- er með stillanlegt hökuband og spennu sem auðvelt er að opna og loka. Spennan á að vera til hliðar en ekki undir hökunni.
- er auðveldur í notkun og létt að þrífa.
Rétt notkun getur skipt sköpum:
- hjálmurinn skal sitja rétt, - ekki of aftarlega
- hjálmurinn skal sitja þétt svo hann hvorki detti af né skekkist þegar á reynir
- böndin eiga að vera rétt stillt. Aftara bandið skal stillt á móti fremra bandi, þannig að eyrað lendi í miðju V-forminu sem böndin mynda.
- hvorki má líma merki á hjálminn né mála hann, þá getur höggþolið minnkað
- hjálminn má aðeins hreinsa með vatni og sápu, - ekki með uppleysandi efnum, ss. þynni, bensíni o.s.frv.
- hjálminn á ekki að nota í leiktækjum.
- Mega hjólreiðamenn hjóla á gangstéttum?
Samkvæmt umferðarlögum er heimilt að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarendum. Þegar nauðsynlegt er að koma í veg fyrir hættu skal hjólreiðamaður gefa hljóðmerki. Sums staðar er notkun reiðhjóla bönnuð á gangstéttum og er þá vakin athygli á því með viðeigandi skiltum.
Með því að smella hér er hægt að horfa á fræðslumyndband um hjólreiðar.