Um hjólað í vinnuna » Myndbandaleikur
Myndbandaleikur Hjólað í vinnuna og Arnarins
Myndbandaleikur Hjólað í vinnuna og Arnarins er nýr liður í Hjólað í vinnuna. Leikurinn gengur út á það að þið takið upp myndband af þátttöku ykkar í Hjólað í vinnuna og sendið á okkur. Myndbandið verður síðan birt hér á síðunni.
Þið getið tekið upp myndband af öllu mögulegu og sent inn, t.d. kynningu á ykkar liðum, sameiginlegum ferðum sem farnar eru á vinnustaðnum eða hverju því sem ykkur dettur í hug að gera.
Dregið verður úr innsendum myndböndum þriðjudaginn 25.maí og hlýtur vinningshafinn 50.000 kr. gjafabréf frá Reiðhjólaversluninni Erninum.
Við hvetjum alla til þess að taka upp skemmtilegt myndband af sínum liðum og senda okkur og taka þar með þátt í að gera heimasíðuna líflegri og skemmtilegri. Hægt er að velja um þrjár leiðar til að senda inn myndband:Heimasíða Hjólað í vinnuna getur einungis birt myndbönd af youtube (www.youtube.com). Til þess að senda okkur myndband þarf því að setja myndböndin þar inn áður en hægt er að birta þau á heimasíðunni eða senda okkur það og við gerum það fyrir þig.
Hér fyrir neðan eru þrjár leiðir sem hægt er að velja um ef þið ætlið að senda inn myndband.
- Ef þú hefur áður sett myndband inn á youtube þá sendir þú okkur slóðina á myndbandið á kristin@isi.is
- Ef þú vilt ekki stofna þér þinn eigin aðgang að youtube, en getur sett myndbandið inn sjálf(ur) getum við sent þér notendanafn og lykilorð af okkar aðgangi sem þú getur skráð þig inná og sett myndbandið inn (Sjá nánari leiðbeiningar með því að opna skjalið hér að neðan)
- Ef þú sérð þér ekki fært að setja myndbandið inn sjálf(ur) getur þú sent okkur það á netfangi kristin@isi.is og við sjáum um að koma myndbandinu á réttan stað.
Með því að smella hér getur þú prentað út ýtarlegar leiðbeiningar um það hvernig á að setja myndband á youtube.