Um Hjólað í vinnuna » Kaffitjöld
Kaffitjöld Hjólað í vinnuna
Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við og fá sér morgunkaffi á þremur stöðum í Reykjavík, í Kópavogi og í Hafnarfirði miðvikudaginn 18.maí frá kl: 7:00 - 9:30. Kaffitár bíður upp á drykkjarföng. Aðilar frá Íslenska Fjallahjólaklúbbnum og öðrum hjólreiðasamtökum verða á staðnum og kynna sína starfsemi. Einnig verða viðgerðarmenn frá Reiðhjólaversluninni Erninum á staðnum og aðstoða við minniháttar lagfæringar á hjólum.
Kaffitjöldin verða á eftirfarandi stöðum:
Í Reykjavík:
- Geirsnef við Bíldshöfða
- við brúna yfir Kringlumýrarbraut, Nauthólsvíkur megin
- við Sæbrautina, við gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar.
Í Kópavogi:
- Kópavogstún, fyrir framan undirgöngin við Fífuhvamm.
Í Hafnarfirði:
- Við Fjarðargötu, gegnt verslunarmiðstöðinni Firðinum
Boðið var upp á kaffitjöldin í fyrsta skipti árið 2009. Um 500 einstaklingar hjóluðu við og fengu sér hressingu áður en haldið var af stað í vinnuna. Árið 2010 voru um 800 einstaklingar sem hjóluðu við og er það von okkar að þátttakendur Hjólað í vinnuna komi til með að nýta sér kaffitjöldin én frekar í ár.
Starfsmenn Kaffitárs bjóða þátttakendum Hjólað í vinnuna nýbrennt og ljúfengt kaffi í morgunsárið á leið í vinnu eða leik. Ef hjólreiðamaður kemur með sitt eigið mál þá fær hann fríbollakort sem er úttekt á kaffidrykk að eigin vali á kaffihúsum Kaffitárs.
Kristall
Einnig verður þátttakendum boðið uppá Egils Kristal frá Ölgerðinni.Með því að smella hér er hægt að prenta út skjal með upplýsingum um kaffihús Hjólað í vinnuna.